04.03.2008 16:01:43 / sanka
Góðan daginn gott fólk og aðrir nú sit ég hér í byggingavörufyrirtæki kópavogar eða byko eins og hinn almenni maður segir. og það er frekar rólegt enn samt altílagi að koma einhverju öðru í verk
margt hefur drifið á fjörur mínir síðan síðast ég t.d. þá mun ég eignast erfingja í ágúst og er það mjög sérstök tilfinning að vita að maður deyr ekki út svona alveg á næstunni. enn þetta er mjög spennandi og gríðarleg tilhlökkun.
Sumarbústaðarferð næstu helgi þar sem verður keppni hver kemur tánum lengst uppí loft og verður það geggjað þar sem ég fór í borg óttans tvær helgar í röð (það er engum manni hollt) aðra helgina á árshátíð byko og hina á fótboltamót byko bæði mjög gaman og tveir til þrír bjórar hvora helgi.

komst að því að það er alltaf leiðinlegt veður í reykjavík rigning-snjór-rigning-rok-rigning.....frh. enn alltaf gott að koma heim mikið talað um í vinnuni hér um helv. Dalvíkingin sem heldur að Dalvík sé miðja alheimsins, þau eru nú bara eitthvað að miskilja segja að akureyri sé höfuðstaður norðurland og eitthvað þegar allir vita að dalvik er miðja alheimsins og höfuðstaður norðurlands það fer bara eftir því hvernig á það er litið
takk í dag
p.s. hvort helduru að ég eignist strák eða stelpu???
svara í komment....
»
14.11.2007 13:49:35 / sanka
jæja komið að blogga 2 eftir hina miklu endurkomu í blogg heiminn. maður spyr sig þegar svona er af hverju maður býr á íslandi enn ekki í einhverju öðru landi þar sem er heitt og notalegt ódýrt og gott að vera frekar húkir maður í skammdeginu þar sem að það er myrkur 20 tíma sólarhringsins gríðarlega sérstakur þjóðflokkur við íslendingar já sem og pólverjar akkúrat þessi árin, ég hef einnig verið að spá í öllum þessum innflytjendum af hvejru í ósköpunum þeir leggja sig bara ekki neitt fram við að læra íslensku ? þetta fólk húkkir um í hópum saman og reynir ekkert til að aðlagast íslensku þjóðfélagi þó svo að sumri geri það þá er miklu fleiri dæmi um hitt. og af hverju erum við ekki að gera neitt í þessu.
svo komum við að Dalvík og þeim sem ráða hér enn er ekkert gert í því að byrja á nýju íþróttahúsi engin skóflustunga verið tekin eða neitt. samt sem áður er verið að grafa fyrir menningarhúsi sem verður algjört flopp ekkert með svona hús að gera á Dalvík af hvejru var ekki bara leikhúsið gamla góða tekið í gegn? eða byggt við ráðhúsið var virkilega ekkert betra að gera við 400milljónir ég bara spyr.
enn aðeins að jákvæðni dalvík/reynir setur markið hátt í sumar með því að styrkja sig um Hermann Albertsson, Ingva Ingvasson og Jóhann Hreiðarsson og vill ég bjóða þá velkomna "heim" og er auðséð að það er spennandi sumar framundan.

»
12.11.2007 22:34:47 / sanka
hóhóhó
Jæja hef ákveðið að byrja að blogg aftur og það á minni gömlu
ágætu síðu ég hef verið að hugsa þetta í smá stund alveg allann dag
eða svo þannig að ég lét bara verða af þessu.
ég datt inn í það að horfa á Edduna í gær þvílíkt rugl
maður einhver mynd sem engin hefur séð mokar inn verðlaunum Egill
Helgasson sjónvarpsmaður ársins hvað er það ég hef allavega aldrei
nennt að horfa á kiljan og hvað þá silfur egils enn svo fannst mér
kynnirinn bara slakur og hljómsveitin léleg því miður fæ ég aldrei
þennan tíma aftur sem fór í þessa Eddu ljósi punkturinn var að
sjálfsögðu það að næturvaktin fékk verðlaun enn mér fannst Pétur
Jóhann eiga skilið verðlaun enn ekki ingvar E. honum fannst ekkki
einu sinni gaman að fá verðlaunin eða naut þeirra ekkert. enn burt
með svekkelsið yfir asnalegum verðlaunum. alir íslendingar borga í
Rúv afnotagjöld enn samt þarf að styrkja það til að það geti sýnt
íslenska skemtilega þætti hey björgólfur gastu ekki gefið þessa
peninga einhverjum sem þarf á þeim að halda einvherjum samtökum eða
barnaspítalanum eða bara einhvern betri stað enn Rúv. Rúv er
fyrirtæki sem ekki á að taka við styrkjum frá einkaaðila vegna þess
að þetta er ríkisrekið og ég ÞARF að borga af þessu eg myndi glaður
frekar borga stöð 2 eða eitthvað annað ef ég gæti enn þetta er bara
skattur enn samt er verið að styrkja þetta bara rugl......
BLESS
»
08.02.2007 21:21:11 / sanka
Góðan Daginn nú er mál að Tilkynna um breytta tíma ekki bara að
liverpool var selt heldur ákvað kallinn að fá ser nýja blog síðu
sem mun vera www.feron.blog.is og hvet ég alla til að skoða hana
alla 2
»
01.02.2007 12:06:34 / sanka
Góðan Daginn nú er reiðin runninn af manni og vill því biðjast
afsökunar á þessu bloggi mínu þetta er rétt að allir gerðu mistök
enn maður varð nú samt reiður og aldrei gaman að tapa já og
liverpool vann mikið rétt, enn við vinnum rússa í dag og um að gera
að lýta á björtu hliðarnar

enn annars bara stemning ekkert að
gerast á Dalvíkinni núna því miður, þannig að jæja
skrifa meira seinna
p.s. Áfram Ísland BeZt í HEIMI
»
30.01.2007 21:29:26 / sanka
Jæja núna vorum við að detta út úr hm í handbolta eftir vægast sagt
ömurlegan leik af okkar hálfu gegn Dönum, við vorum lengi vel góðir
og svo kúkuðum við í brækurnar "strákarnir okkar" sem á morgun
verða bara kallaðir landsliðið þvííkir aulabárðar sjá Loga ég meina
þótt að Danir hafi átt okkur einu sinni þá er algjör óþarfi
að gefa þeim boltann í lykilstöðu. svo væri alltílagi að verja
eitthvað líka enn Þetta voru mikill vonbrigði og er ég frekar
brjálaður enda getum við miklu meira enn við sýnum þanniga að ég
legg til við rúv að við sýnum bara Hm í brids frekar enn þetta
beint vegna þess að þar eigum við möguleika á sigri. enn ekki
hér.....frekar enn í nokkru öðru....
Bless
Frekar fúll.........................
»
23.01.2007 14:12:23 / sanka
Góðan Daginn í dag, eru ekki allir hressir eftir þessa annars ágætu
helgi!!! nú styttist óðum í ferðina
a Anfield Road og að sjálfsögðu þorrablótið sem er á
laugardagskveld... og verður hörkustuð þar á ferð. Strákarnir okkar
gerðu frábæra hluti í handboltanum í gær og SÖLTUÐU eins og við
segjum á klakanum Fransmennina og var magnað að horfa á það,
Liverpool sáu líka til þess að helgin var eins frábær og hún varð
þegar þeir tóku chelsea nokkuð létt verð ég að segja algjör snilld.
enn burt séð frá því þá er ég og fanney mín búnað staðfesta íbúð í
Skógarhólum þannig að þangað flytjum við í sumar. Aldeilis magnað
það.
Allt að gerast það er orðið rólegt hér í hverfinu aftur eftir
atburði liðinar viku enn mér langar samt að vita hvað verður til
þess að maður sem ógnar öllum í kringum sig og lætur
víkingasveitina koma hingað er komin heim morguninn eftir svona
atburði??? hvað steypa er þetta eitt enn dæmi um hvað við búum í
asnalegu réttarkerfi. T.d. ætti að taka alla sem gera eitthvað við
börn og sleppa þeim í einhverjum garði þar sem allir væru með
veiðileyfi á þá djöf....viðbjóður. Enn svona er þetta menn með
marga svona dóma eru bara lausir og geta framið brotin aftur þótt
þeir eigi að vera í fangelsi....sjá kompáss enn jæja nenni ekki að
rífa mig yfir einhverju sem breytist ekki.
p.s.
vill líka benda öllum sem ferðast á fjöll, labbandi, sleðandi eða
bara einhvernvegin að snjóflóðaýlir er nauðsýnlegur búnaður hefur
bara sýnt sig undanfarið.
Síða dagsinns erfitt val í þetta sinn enn ég verð að segja
www.barnaland.is/51389 síða bróðir míns hans Arnar.
BLESS
»
18.01.2007 23:17:17 / sanka
Vill minna þessa 2 sem lesa síðuna mína að þorrablótið er á
laugardaginn næsta kl. 19:00
niðrí húsi skráning hjá mér hef ekkert meira að segja í bili.
Síða dagsins er www.liverpool.is klárlega besta stuðningsmannasíða
á netinu.
ÚT!
»
16.01.2007 23:28:08 / sanka
jæja nú er þetta yfirstaðið og allir á lífi, þrátt fyrir að
byssumaður hafi ógnað hverfinu
en svona er þetta enn maður er nú
enn að ná sér niður eftir að hafa horft á hostage LIVE já á litlu
Dalvíkinni okkar, þetta er að breytast í eitthvað bæli hérna þessi
bær hefur nú lag á sér fyrir að draga alls konar lýð að sér
sem og útlendinga í gífurlega miklu magni... og það hlaut að enda á
einhverju svona, aðkomumaður sem missir sig og hringir í
neyðarlínuna og er með skotvopn í fjölmennu hverfi sem búa fullt af
börnum í. hvernig er þjóðfélagið þetta litla saklausa Dalvíska
þjóðfélag að verða þarf maður að fara læra Pólsku sem annað
tungumál ??? svo er íslenskt réttarkerfi þannig að þó að ég myndi
gera eitthvað af mér þá myndi ég vera laus í 2 ár og fara í
fangelsi í 30 daga og svo skilorðsbundið í 20ár enn bara í
alvarlegustu tilfellum oftast þarf maður ekki að sitja inni.
Sorglegt ekki satt bara kjaftæði þetta íslenska þjóðfélag þingmenn
þykjast hlusta á almúgan en gera það ALLS ekki bara alls ekki
neitt. T.d. þetta RÚV Frumvarp það kemur hvergi fram að maður þurfi
ekkert að borga þessi skattaafnotagjöld bara að rúv verði örðuvísi
og ekki getur það nú versnað þannig að. Enn eins og ég segi svona
er lífið enn varðandi NAM hérna í brimnesbrautinni í kveld þá eru
allir glaðir að málinu skuli vera lokið án þess að einhver slasist.
Sumir eiga bara erfiðara enn aðrir og verðum við að sætta okkur við
það nema þegar það drepur okkuir ekki satt.
enn yfir og út úr braut óttans BRIMNESBRAUTINI Á DALVÍK!!!!!
»
16.01.2007 20:56:53 / sanka
Þannig er mál með vexti að ég er nú lokaður inn í hverfinu mínu þar
sem víkingasveitinn frá akureyri er búnað loka hverfinu -ÞETTA ER
EKKI SPAUG- á Dalvík Á ÍSlANDI eru menn með byssu og skildi fyrir
utan mína íbúð... það er buiða að loka hverfinu...og allt að gerast
ljosin eru slökkt í þessari íbúð sem þeir eru að króa af.....skirfa
meira seinna endurtek ÞETTA ER EKKI SPAUG...
»
15.01.2007 22:01:04 / sanka
Jæja nú var ég að hugsa um að blása rykið af þessari annars
margfrægu blog síðu og reyna að skrifa inná hana af og til. það sem
er helst í fréttum núna er að kallinn er að fara á Anfield road
fyrir þá sem ekki vita þá er anfield heimavöllur liverpool og þar
ætla ég að skella mér á 2 leiki Liverpool-Man Utd og hinsvegar
Liverpool-Barcelona þannig að þetta eru 2 STÓR leikir og verður
vafalaust mikið fjör á kjellinum.
enn jæja ég veit ekki hvað ég á að ræða meira núna nema ég
eignaðist lítinn bróður núna seint á síðasta ári nánar tiltekið
október og heitir hann Örn og á hann vafalaust eftir að láta af sér
kveða í framtíðinni enn hann fékk glænýjan liverpool búning í
fæðingargjöf þannig að ég er að sjá til þessa að liverpool uppeldið
haldist enda grenjaði hann mikið þegar hann sá Jakob Svila í
Arsenal treyju ekki vinsælt það.
Heimasíða Vikunar er heimasíða okkar liðs númer 2 inn við beinið
eða Norwich City
www.blog.central.is/norma og hvet alla til að fara þar inn enn má
geta þess að Magni nokkur Óskarsson heldur þessari síðu
uppi.....
bæ í bili
»
21.04.2006 15:30:43 / sanka
alltaf er verið að breyta og prufa og grilla eitthvað t.d. er þetta
minn sirkus eitthvað nýtt sem eg kann ekkert á það mun taka mig ca.
15ár að læra þetta uppá nýtt bara segja frá því flöskudagur í dag
sem er föstudagur buzzkvöld í kvöld og svo ferð í stekkjarhús á
morgun...magnað.... síða dagsins...er dadaradada síðan hjá pabba
gamla www.blog.central.is/fillinn stemning þar
»
12.04.2006 14:42:09 / sanka
ferðabloggið var klárt enn týndist sorry kiddi verðum bara að rúnta
og ræða hana....hehe hef litið að segja svona i páskafríinu enn
jæja ný könnun um framtíðinna í boltanum
»
25.03.2006 22:07:36 / sanka
þeir eru gungur sem skrifa ekki undir nafni og hana nú....
Góðan dag ég ætla að prufa að vera með svona
könnunardæmi...
1. Þú segir eitthvað handahófskennt um mig.
2. þú Segir mér hvaða lag minnir þig á mig.
3. Þú segir mér hvaða bragð minnir þig á mig.
4. þú segir eitthvað sem meikar bara sens fyrir mig og þig.
5. þú segir mér fyrstu ljósu minninguna þína af mér.
6. þú segir mér hvaða dýr minnir ég minni þig á.
7. þú spyrð mig að einhverju sem þér hefur lengi langað að spurja
mig að.
»
01.03.2006 15:44:27 / sanka
Vei fögnum því að það kemur ekkert ljótt álver hér í Eyjafirði.
Annars var mér nokkuð sama sko, enn þá var annað sem vert var
að nefna það er hundaskíturinn á götum dalvíkur sem
hundaeigandi þá býður mér eg tjáði mig um þetta á annari síðu
og fannst tilvalið að henda þesu hérna inn. það að hundar gangi
lausir og meirað segja í bandi og svo kúka þeir á lóðir hjá öðrum
og meira segja á stéttir fyrir framan húsin og hvað gerist
hundaeigendanum í næsta húsi er kennt um og ég þrif alltaf upp
eftir hundinn minn meirað segja einu sinni þá klíndi nágranna
asninn hundaskít á hurðinna hjá mér og ég spyr er það bara af því
að ég á hund vegna þessa að ekki kúkar minn hundur þarna 
enn svo ætla ég að tala um gufurnar í bæjarstjórninni ég
var að heyra að þeir ætla að laga íþróttahúsið okkar fyrir
300-400mill. í staðinn fyrir að byggja nýtt nálægt
sundlauginni fyrir 180mill. og nýta með því starfsfólk og
annað ef það yrði gert eins og síðuskóla húsið sem er nýtt og
mjög flott. og ég bara spyr finnst ölllum þetta óskynsamlegt
eða bara mér?? er hægt að bjarga okkar gamla íþróttahúsi fyrir
helmingi meira enn nýtt myndi kosta ég bara spyr og borgar það sig
þá ??? ég meina væri ekki flott að hafa íþróttamiðstöð þar sem
sundlaugin og vellirnir eru?? það er ég viss um og það mætti nýta
gamla húsið í eitthvað annað.
p.s. Ég er að borga mitt hundaleyfisgjald og ég spyr enn og
aftur bæjarstjórninna fyrir hvað er ég að borga eina töflu sem
kostar 250kall það er ekkert hundasvæði á Dalvík sem ég má vera með
hundinn minn lausann og til hvers er ég þá að borga...???
p.s.s. síðan í dag er síðan hans Visions sem ég hef
gaman af og skoða oft... hann er með góðar og skemtilegar skoðanir
á hlutunum.... http://blog.central.is/vision
»
Síður:
1 2 3 4